Window XP Annoyances, ágætis bók. Tekur á sumum af þeim atriðum sem að maður lendir í dags daglega.
Til dæmis codec vandræði og þess háttar. Þessi bók fékk þó aðeins of góða dóma í ummælum en hún átti skilið að mínu mati.
Er á kafi í próflestri þessa dagana, bara mánuður í BCAB prófið í Birmingham og ætlaði síðan að taka Security+ prófið fyrir Desember. Búinn að panta bækurnar fyrir prófið, koma líklega í næstu viku. Veit ekki hvar ég væri ef ekki nyti Amazon.com við, eitthvert mesta þarfaþing í heimi hér. Kláraði ST TNG S4 í sumarfríinu, nú er bara spurning hvað maður heldur lengi út áður en næsta season verður pantað... he he. Var svona eiginlega búinn að ákveða að panta S5 þegar ég er búinn með prófið hjá BCAB, það er nú bara sanngjarnt. Ekki satt ? Famelían fékk annars smá hroll um daginn þegar allir vitleysingarnir voru böstaðir í Bretlandi um daginn, sprengingar í flugvélum manstu ?? Við vorum nefnilega í Coventry í fyrra þegar lestarsprengingarnar áttu sér stað. Höfðum hugsað okkur að fara til London í þeirri ferð en hættum við, eins og gefur að skilja. Vonandi förum við nú ekki að lenda í einhverju veseni, það væri nú bara til að kóróna þetta, lol. Verð víst eitthvað lítið á landinu í september, ferðalög fyrirhuguð um víðan völl. Ætlaði að reyna að "bóka" mig vel upp í leiðinni, hef ekki verslað neitt gríðarlegt magn af bókum undanfarið. Kominn á þörfina, if you know what I mean. Er sem stendur að bíða eftir að komi út uppfærðar bækur fyrir A+ IT Technician og A+ Remote Desktop Support, en þær eru væntanlegar þegar nær dregur jólum. Held að þau próf eigi eftir að koma að góðum notum. Hef ekki lesið A+ efni síðan 2003, ekki svona markvisst. Maður þarf að halda sér við í þessu, enda búið að uppfæra prófin all hressilega núna, komnar þrjár varíasjónir á þeim. Eftir nokkra pælingu þá er ég sannfærður um að þessi lestur eigi eftir að nýtast vel. Geri ráð fyrir að fara í þessi tvö próf eftir áramót. Var búinn að vera að spekúlera í MCDST prófunum en komst að þeirri niðurstöðu að þau skiptu afar litlu máli fyrir mig, sérstaklega í ljósi þess að Vista er að koma á næsta ári og þá þarf maður að taka Vista útgáfuna af 70-270 aftur. Alltaf spurning um að forgangsraða. Látum þetta gott heita í bili.
sunnudagur, ágúst 20, 2006
sunnudagur, júlí 30, 2006
Gamlir tímar upplifðir á nýjan leik
Þegar ég var ungur peyi, kannski svona 12 - 13 ára, þá keypti ég mér mitt fyrsta marvel comic blað á ensku. Fram að þeim tíma hafði ég bara verslað comics á íslensku. en þau blöð voru prentuð í Siglufjarðarprentsmiðjunni. Þessi íslensku blöð voru skelfilega illa þýdd, prentunin oft léleg en maður lét það nú ekki á sig fá. svo uppgvötaði ég kjallarann í Eymundsson, beint á móti hlemmi. Þetta hefur verið ca. 1988. Gísli hét maður sem réð þar ríkjum, hann sá um að panta inn blöðin. Þar byrjaði ballið, fyrst keypti maður The Avengers, svo Hulk og þróaðist síðan út í The Uncanny X-men. Gísli hætti stuttu síðar í Eymundsson og opnaði búð á Rauðarásstíg, held að hann hafi opnað hana sjálfur en ekki bara unnið þar. Það var fyrsta alvöru comic búðin á landinu að ég held. Þvílíkt úrval ! Heilt tonn af blöðum og heill hellingur af gömlum blöðum líka. hef ekki hugmynd um hve miklum tíma ég eyddi þarna inni í gegnum árin, but it feels like a long time. Þessi búð hætti nú samt líka og á endanum var nexus á hverfisgötunni stofnað, man ekki hvaða ár. Þegar Nexus opnaði var ég orðinn fjölskyldufaðir og hættur að kaupa comic blöð en ég fer samt annað kastið í Nexus. Til dæmis fyrir jólin, vegna jólagjafa handa litlum strumpum og þess háttar. ástæða þess að ég er að þylja allt þetta upp er sú að ég var að taka til í geymslunni hjá mér í sumarfríinu og rakst á gamlan kassa með öllum gömlu comic blöðunum mínum. hef svona verið að glugga í þau í fríinu. meiriháttar nostalgía, svo ekki sé meira sagt. X-Factor 69, Wolverine 50, X-men 1, Spiderman 1 og fleira í þeim dúr. Demon, frá DC Comics var alveg brilliant blað. ég hef verið að reyna að muna hvenær ég keypti ákveðin blöð, sumt man ég eins og gerst hafi í gær. Til dæmis þegar ég keypti fyrsta Uncanny X-men blaðið mitt, nr. 267. Tók strætó niður á hlemm og fór í kjallarann í eymundsson. fór gagngert til að kaupa Avengers blað en afréð að kippa þessu x-men blaði með mér líka þar sem að Captain America var guest star í þessu x-men blaði. Skondið. varð svo miklu hrifnari af x-men eftir það. það sem mér finnst mest hafa breyst í dag er að blöðin eru orðin svo leiðinleg, þ.e.a.s. þessi nýju. blöð sem hafa komið út eftir að ég hætti að safna. miklu alvarlegri, leiðinlegri teikningar osfrv. ég heyri á þeim peyjum sem halda til niður í nexus að núna séu blöðin mun betri að þeirra mati, dýpri söguþráður og þess háttar. það getur meira en vel verið að þetta sé rétt hjá þeim, en mér fannst gömlu blöðin miklu mun betri. ég notaði comics til að flýja raunveruleikan, ekki til að upplifa hann í öðrum miðli. the thing og power man að slást var bara snilld! ég vildi engan djúpan söguþráð, bara action og hasar. það virðist vera á undanhaldi. mér fannst þessi miðill, og finnst þessi miðill, afar spennandi. en eins og ég sagði, ég vil ekki fá raunveruleikann eða útgáfu af honum í þessum miðli. fyrir mig var þetta alltaf afþreying og ég sakna þessarra gömlu gilda. það var alls ekkert að því að láta heilt blað vera einn stóran bardaga, engar allt of djúpar pælingar, heldur bara: KABOOM ! SLAM ! FATAKK! BAMF! bring back the old days I say! ég man að ég safnaði á tímabili 14 titlum, þá fór ég einu sinni í mánuði niður á hlemm og keypti blöðin og fór svo beinustu leið á madonna á rauðarásstíg og pantaði pizzu. svo sat ég í allt að tvo tíma og maulaði pizzu og las blöð. those were the days, those voru sko the days!
laugardagur, júlí 15, 2006
Þunnur þrettándi
las Blaðið í morgun. Varla fréttnæmt í sjálfu sér nema fyrir þær sakir að ég hef ekki lesið það í þó nokkra mánuði.
Á forsíðunni var Eiríkur Jónsson blaðamaður og viðtal var síðan við hann í blaðinu. Viðtalið var hreinlega um ekki neitt.
Nema þá kannski til að fylla upp í blaðið. Sem dæmi um uppfyllingarefni þá var heilli síðu varið í auglýsingu frá blaðinu
sjálfu um að "hér" mætti auglýsa. Segir líklega það sem segja þarf um þennan auma snepil. Ég fletti vandlega yfir allt blaðið
en fann hreinlega ekkert sem mér þótti nógu spennandi til að réttlæta þann tíma sem var varið í að fletta blaðinu.
Mikið hefur verið rætt um þessi fríblöð á Íslandi, með og á móti. Persónulega finnst mér Mogginn ekki vera mjög spennandi heldur.
Eins og svo margir aðrir þá læt ég tölvuna duga til að verða mér úti um fréttaefni í lesnu formi.
Þessar svokölluðu greinar og viðtöl eru það þunn að það er alls ekki þess virði að eyða tíma í þau.
Persónulega byrja daginn alltaf á http://news.google.com Þá síðu er ég búinn að persónalæsa þannig að það fréttaefni sem mér finnst mest spennandi birtist efst á síðunni, og svo framvegis. Ég reyndi að nota My MSN síðuna en það var alveg sama hversu miklum tíma ég eyddi í að persónalæsa hana, það vistaðist aldrei þær breytingar sem ég gerði á henni. Þurfti alltaf að byrja upp á nýtt að sérsníða hana. ÞOLI ÞAÐ EKKI !!! Með því að sérsníða heimasíðu á þennan hátt þá fæ ég beint í æð þær fréttir sem ég vil lesa og ekkert kjaftæði. Ætli það sé ekki þegar einhver íslensk síða kominn með þennan möguleika, annað kæmi mér á óvart. Í öllu falli, ég mæli eindregið með að menn skoði þennan möguleika að sérsníða fréttasíðurnar sem þeir lesa. Miklu skemmtilegra og gagnlegra.
Á forsíðunni var Eiríkur Jónsson blaðamaður og viðtal var síðan við hann í blaðinu. Viðtalið var hreinlega um ekki neitt.
Nema þá kannski til að fylla upp í blaðið. Sem dæmi um uppfyllingarefni þá var heilli síðu varið í auglýsingu frá blaðinu
sjálfu um að "hér" mætti auglýsa. Segir líklega það sem segja þarf um þennan auma snepil. Ég fletti vandlega yfir allt blaðið
en fann hreinlega ekkert sem mér þótti nógu spennandi til að réttlæta þann tíma sem var varið í að fletta blaðinu.
Mikið hefur verið rætt um þessi fríblöð á Íslandi, með og á móti. Persónulega finnst mér Mogginn ekki vera mjög spennandi heldur.
Eins og svo margir aðrir þá læt ég tölvuna duga til að verða mér úti um fréttaefni í lesnu formi.
Þessar svokölluðu greinar og viðtöl eru það þunn að það er alls ekki þess virði að eyða tíma í þau.
Persónulega byrja daginn alltaf á http://news.google.com Þá síðu er ég búinn að persónalæsa þannig að það fréttaefni sem mér finnst mest spennandi birtist efst á síðunni, og svo framvegis. Ég reyndi að nota My MSN síðuna en það var alveg sama hversu miklum tíma ég eyddi í að persónalæsa hana, það vistaðist aldrei þær breytingar sem ég gerði á henni. Þurfti alltaf að byrja upp á nýtt að sérsníða hana. ÞOLI ÞAÐ EKKI !!! Með því að sérsníða heimasíðu á þennan hátt þá fæ ég beint í æð þær fréttir sem ég vil lesa og ekkert kjaftæði. Ætli það sé ekki þegar einhver íslensk síða kominn með þennan möguleika, annað kæmi mér á óvart. Í öllu falli, ég mæli eindregið með að menn skoði þennan möguleika að sérsníða fréttasíðurnar sem þeir lesa. Miklu skemmtilegra og gagnlegra.
mánudagur, júlí 10, 2006
The Physics of Star Trek: Lawrence M. Krauss
Ég held að það sé óhætt að kalla mig trekkara, reyndar eru nokkur rök fyrir því að kalla mig ýmislegt, but for the sake of argument skulum við kalla mig trekkara. Eftir að hafa lesið The biology of Star Trek þá fann ég það út snögglega að The physics of Star Trek væri eitthvað fyrir mig. Bókin er skrifuð af vísindamanni nokkrum sem hefur fylgst með Star Trek í langan tíma. Þessi bók reyndist vera aðeins dýpri pæling en ég hafði átt von á. Það getur verið bæði gott og slæmt. Sem dæmi, ítarlega er farið yfir "transporter-a". Hvernig þeir ættu að virka og svo framvegis. Þetta hljómar prýðilega en í raun er þetta svo djúpt skoðað að höfundurinn fer að velta fyrir sér hversu stóra tölvu þyrfti til að geyma allar upplýsingar um DNA hjá hverjum þeim einstakling sem er fluttur með "transporter-num". Í ljós kemur, samkvæmt hans útreikningi (og það er sko þó nokkuð af útreikningi í bókinni) að tölvan sem nauðsynleg væri miðað við núverandi geymslumöguleika á gögnum yrði svo stór að hún kæmist ekki fyrir í Enterprize D class skipi. Athugið, D class, ekki E class. Sem sagt magnið af hörðum diskum + stærðin á tölvunni kæmist ekki fyrir í D class skipi, en það skip er by the way fjórar milljónir metric tonna að stærð. Ok, ég gæti farið út í nánari lýsingu á því hversu tæknilega nákvæm þessi bók er en tel það ekki vera nauðsynlegt. Hægt er að verða sér úti um slíkar upplýsingar á hvaða Star Trek nördasíðu sem er, það er ekki markmiðið með þessarri lýsingu. Bókin var bara ekki nógu skemmtileg aflestrar, því miður. Of tæknileg fyrir minn smekk, en það er náttúrulega markmið hennar. The biology of Star Trek var mun skemmtilegri aflestrar, mér finnst óhætt að mæla með henni. Þessi er aftur á móti bara fyrir alhörðustu trekkarana.
sunnudagur, júlí 09, 2006
breyting á blogginu
Eftir að hafa pælt aðeins í þessu þá hef ég tekið þá ákvörðun að breyta þessu bloggi. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að ég hreinlega er ekki nógu duglegur að skrifa hérna reglulega. Þess vegna datt mér í hug að skrifa hér eftir aðeins um þær bækur sem ég hef lesið, er að lesa, ætla að lesa. Spurning hvort það sé skemmtilegt lesefni, það verður bara að koma í ljós. Geri ráð fyrir að setja inn fyrstu umsögnina fljótlega. Tjaó for ná.
laugardagur, maí 06, 2006
Sól í heiði
Þetta líka fína veður í dag, no complaints there. Dagurinn fór í heimsókn á opið hús í leikskólanum, tiltekt í bílskúrnum og svo var ráðist í að þvo bílana. Fannst reyndar nokkuð skondið að ég var tæplega hálfnaður að þvo þegar nágranni minn kom heim. Hann er á þessum líka flotta Bens jeppa, sem var frekar skítugur að sjá. Að sjálfsögðu gat hann ekki verið minni maður en ég. Enda ég bara á einhverri japanskri dós. Þannig að hann var kominn út að þvo við hliðina á mér fimm mínútum síðar. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei litið á bílaþvott sem einhvers konar hobbí. Ég bara ræðst á kvikindið, munda svampinn og sápuna og sprauta svo á hann. Það er að segja bílinn, ekki nágrannann. Þessu líkur svo öllu á yfirferð með vaskaskinninu. Í verkið sjálft er notuð garðslanga og svampur af næstu bensínstöð. En þegar maður á Bens þá er þetta allt annað mál ! Ég fylgdist með honum ganga inn og átti alveg eins von á að hann kæmi aftur fljótlega að þvo. Bensinn var hvort eð er nokkuð dörtí. Hann skilaði sér sem sagt stuttu síðar og rauk inn í skúr að sækja áhöld til þvottsins, eða ég gerði ráð fyrir því. Ég fylgdist með honum með öðru auganu og glotti út í annað. En mér brá heldur betur í brún þegar hann mætti út með tæki sem leit út eins og ryksuga, en samt var tengd garðslanga í annan enda þess. Svo keikti vinurinn á græjunni og þetta hljómaði svipað og tækin sem notuð eru til að hreinsa málningu af húsum. Þessi hljóð þekki ég reyndar ágætlega því ég prufaði að hreinsa málningu af húsum í aukavinnu hér um árið. Allavega, venjuleg garðslanga dugir sko hreint ekki á Bens heldur þarf Maclaren sprautu á kvikindið líka. Það hefði svo sem verið í fína lagi ef hann hefði haldið áfram með verkið, en nei nei. Þetta tók þvílíkan tíma, hann var góðar 10 mínútur bara að sprauta af Bensanum áður en hann gat byrjað að sápa kvikindið. Ég er kannski ekki manna duglegastur við að þvo bílana mína, en ég reyni nú að sýna lit um helgar og halda þeim hreinum. En viðlíka aðferðir og nágranni minn viðhefur í bílaþvotti hef ég ekki séð áður. Það er alveg greinilegt að maður þarf að fá sér Bens ef maður vill læra að þvo bíla á þennan hátt. Ég held að ég muni nú samt ekki ganga alveg svo langt, hef ábyggilega ekki efni á svoleiðis pælingum, en mínir bílar eru nú (ja allavega í seinni tíð) tiltölulega hreinir allajafna. Númer 2 sonur er orðinn sérlegur aðstoðarmaður minn í bílaþvætti. Mætir alltaf með gamla manninum að þvo, klikkar ekki. Hræddur um að ég hafi nú sjálfur ekki verið svona duglegur að hjálpa föður mínum í þessum efnum þegar ég var yngri.
þriðjudagur, maí 02, 2006
ungur temur, gamall temur
Ég held nú að máltækið hafi ekki alveg verið svona, en þetta er það sem ég upplifi. Ég hef lítillega fjallað hér um hvers rassskelli ég hef fengið frá númer 1 og 2 sonum í tölvuleikjum. Nú er sá þriðji tekinn við. Að vísu ekki í tölvuleikjum þó, allavega ekki ennþá. En númer 3 sonur kemur nú ávallt með mér og númer 2 syni að þvo bílana. Við skellum honum í barnakerru við hliðina á bílastæðinu og hann situr þar á meðan við mundum svampana og föturnar. Hugmyndin var að hann sæti þar spakur, en það er sko ekki raunin. Undanfarnar vikur hefur hann verið trítilóður inni hjá mömmu sinni á meðan við feðgar erum úti að þvo, hann hefur sem sagt verið að heimta að fá að koma með. Þannig að við létum þetta eftir honum að koma með okkur. Svo á mánudagsmorguninn, klukkan hálf níu sat litla dýrið í kerrunni og spangólaði á okkur: Pabbi !! Þurrka ! Sprauta ! Fast Fast ! Meira ! Emil líka ! Búinn ???......... og svo framvegis. Ég er hræddur um að ég hafi ekki unnið neina vinsældarkosningu hjá nágrönnunum undanfarið. En við erum allajafna nokkuð snemma á ferð að þvo um helgar. En það verður víst bara að hafa það. Ætti svo sem ekki að skipta máli í sjálfu sér, ég veit ekki einu sinni hvað þessir blessuðu nágrannar mínir heita, hvað þá meira. Það er sko annað en þegar við vorum í Laufenginu er ég hræddur um. Reyndar voru okkar gömlu nágrannar úr Laufenginu svo miður sín að við værum að flytja á sínum tíma, að þeir afréðu að flytja barasta úr landi ! Ekki lái ég þeim það svo sem, maður veldur alveg hreint gríðarlegum fráhvarfseinkennum, he he. En þau, Angi og Þórunn, eru nú að koma aftur til landsins í sumar. Meira að segja í okkar hverfi, kom mér svo sem ekkert á óvart ... tíhí. Þau verða í göngufæri við okkur, í "Seli" rétt hjá okkur. Nú er bara að koma Gunnu og Óskari í hverfið líka and it will be like old times.
Subscribe to:
Posts (Atom)